14. janúar 2011 klukkan 11:16
ég hef oft pælt í því afhverju konur gifta sig nánast alltaf í hvítum kjólum, er það kannski afþví að heimilistæki koma nánast öll í hvítu?
14. janúar 2011 klukkan 11:12
talandi um destiny ... Ólafur R. Dýrmundsson, formaður Dýraverndarsambandsins, getinn af dýri og því skylda hans að vernda þau upp frá því!
14. janúar 2011 klukkan 11:05
í körfubolta er hitað upp í körfubolta ... segir það ekki meira en mörg orð um þessa íþróttagrein sem er kölluð "skandinavískar hrindingar?
07. júní 2009 klukkan 20:36
reyndi að fara inn í grafarvog í dag, það gekk frekar illa þar sem það var allt fullt af skurðgröfum og traktorsgröfum út um allt á öllum vegum. skil núna afhverju þetta pleis er kallað grafarvogur!
07. júní 2009 klukkan 19:38
ég held að það sé alltaf mjög notalegt og kósý hjá honum Nicolas Sarkosy Frakklandsforseta, ég meina hann heitir Kósý!
27. maí 2009 klukkan 13:55
i'm back ... þannig að verið viðbúinn suckers!
24. apríl 2009 klukkan 09:27
Vitið þið hvað maður fær með því að blanda saman bjórnum Kalda og Viagra ... jú, Stinningskalda!
22. mars 2009 klukkan 22:35
það er mjög einfalt að passa börn, maður tekur bara um handfylli af smartiesi og hendir svona upp í loftið og niður á gólf. síðan er bara að halla sér aftur og slappa af.
19. mars 2009 klukkan 12:39
einusinni var þetta vinsælasta blogg landsins en er það greinilega ekki lengur! bara um leið og það kemur kreppa þá hrynur allt!
09. mars 2009 klukkan 18:12
því miður þá er sumt fólk leiðinlegt og enginn vill þekkja svoleiðis fólk. ég kann gott ráð við því, maður tekur bara úr þeim leiðinlegurnar og setur í þá skemmtilegur og eftir það eru þessi leiðinlegu einstaklingar orðnir skemmtilegir!