Minnihlutahópur?

07. apríl 2006 klukkan 19:17
legg stundum leið mína að einni ákveðinni endurhæfingarstofnun hér í bæ og þar eru yfirleitt fullt af bílum lagt fyrir utan í bílastæði fatlaðra enda eru þessir bílar allir útbúnir fyrir hreyfihamlað fólk. þetta eru engir smá bílar, Audi Quadro V8, Ford Pick-Up bílar og BMW M5 sportkerrur. svo er verið að segja að fatlað fólk hafi það skítt!

Kiddi Geir

mac vs pc

06. apríl 2006 klukkan 20:29
hingað til hefur fólk oft verið að rífast hvort sé betra og bla bla bla. ég hef bara notað pc og kann þær (windows) og er vanur viðmótinu í þeim. nú hinsvegar er komin MacBook Pro sem inniheldur Intel örgjövan og nú er hægt að vera með windows uppsett á hluta af tölvunni og mac stýrikerfið á hinum helmingnum. Það þýðir að allir leikir og forrit eru kominn úr pc á mac.

ég fíla mac út af útliti, gæðum og hversu þægilegar þær eru en hef ekki fílað þá hluti sem snúa að að fá forrit, leiki og að venjast að nota þær. til dæmis er ömurlega erfitt að fá glugga í full screen, því þeir maxa sig bara á einn veg, og litlir hlutir eins og að hægri smella var ekki hægt og þá var maður strand bara! Síðan er ekki hægt að halda niðri shift og stroka út á sama tíma! sem er pirrandi.

fæ mér samt macbook næst.
Kiddi Geir

atriði til að leggja á minnið: MIKILVÆGT

06. apríl 2006 klukkan 19:15
sökum alzheimers þá ákvað ég að skrifa þetta niður svo ég muni þessi atriði.

- 19. maí: Da Vinci Code: The movie frumsýnd.
- 1. júní: fara til Barcelona / Salou í 3 vikur.
- 12. júní: nýja platan með Keane kemur út.
Kiddi Geir

Gleyminn

05. apríl 2006 klukkan 15:20
Fólk eins og ég sem er með alzheimer lite veit stundum ekki ..... ehh ...... já.
Kiddi Geir

Pósturinn

05. apríl 2006 klukkan 15:10
Fólk sem ber út póst er yfirleitt fólk sem finnst gaman að vera úti, gaman að labba mikið hrætt við hunda og því er yfirleitt illa við e-mail og tölvur.
Kiddi Geir

Góð íþrótt ... gulli betri

05. apríl 2006 klukkan 14:43
fór í gær á æfingu og er að drepast í löppinni ... en eins og þeir segja eru íþróttir hollar. það má sannreyna með því að gera eins og ég um þarsíðustu helgi þegar ég spilaði 5 körfuboltaleiki á 3 dögum ... ég og hinir í liðinu erum ennþá að jafna okkur.
Kiddi Geir

Ósiður út ... ósiður inn!

04. apríl 2006 klukkan 22:56
hætti í gosi og nammi ... byrjaður í expresso kaffi! Hversu hollt er það vs. Kók ég spyr. Kók er að minnsta kosti vatn, súrefni og sykur (sem er víst nauðsynlegur). Kaffi er bara heitt flatt vatn og ... já kaffi. Það getur varla verið hollara.

bara mánuður eftir í þessu átak ... and counting
Kiddi Geir

Bætur ?

04. apríl 2006 klukkan 18:51
Lesblinda er fötnl
Kiddi Geir

Átak 2006

04. apríl 2006 klukkan 17:08
Nú er smá átak í vinnunni og ég er að hugsa um að vinna það til að geta hlegið að þeim tveim sem komu því af stað. Það eru tveir vinnufélagarmínir sem hafa reykt og ekki hreyft sig neitt reglulega og því voru þeir orðnir kolrangstæðir. Ég hef æft á fullu frá unga aldri og tek núna smá rispu og ætla taka þetta. Til dæmis frá og með gærdeginum er ég hættur að drekka kók. Að því sögðu er eitt sem mér finnst alltaf jafn fyndið og það er þetta diet allt. Ég fer þá ekkert að drekka diet kók eða pepsi max … í fyrsta lagi af því að það er viðbjóður og í öðru lagi er það ekkert hollara að drekka gervisætuefni. Ef maður er hættur þá á maður að hætta. Fólk sem hættir að reykja fer ekki að reykja Salem Lights eða Capri ! Afhverju að fá sér Tópas m/ engum sykri ... er ekki alveg eins gott að sleppa því, sem og Cheerios með undanrennu. Það bara er ekki það sama. Það versta sem ég hef bragðað er Lite bjórinn. Annað hvort drekkur fólk bjór eða sleppir því. fuckings $%&*? !!!

Fólk er alltaf að plata sig og fara í kringum hlutina. Hjá mér er þetta bara í pásu þangað til ég er búinn að vinna þessa keppni. Fyrir ykkur sem hafið ekki séð mig þá er ég 186.5 cm og rétt um 95 kg sem er yfirlýst kjörþyngd í norður-evrópu. Ég er ekkert neitt bitur megrunar-einstaklingur ... bara með keppnisskap.
Kiddi Geir

2 bloggsíður á 2 dögum

04. apríl 2006 klukkan 16:55
í gær bjó ég til myspace síðu á 10. mínutum. í dag bjó ég síðan til þessa síðu hérna á bloggar.is ... hvað ég geri á morgun veit ég ekki en ég á eftir blogger.com, movetype, worldpress og blog.central.is! Kannski að maður geri þetta að svona gjörning og lýsi því yfir að nú sé ég listamaður!
Kiddi Geir

Auglýsing

Kiddi á Krít

Leit

Innskráningar kubbur