Kolvetni

29. mars 2007 klukkan 13:10
í dag er ég að hlaða mig upp af kolvetnum fyrir næstu helgi en þá er úrslitkeppni 2. deildar í körfunni háð og um að gera að vera uppfullur af orku. þar sem að það er ekki mikið af kolvetnum í hamborgurum, pulsum, kóki og nammi þá þýðir það einfaldlega að ég verð að borða 2. sinnum meira af öllu þessu til að ég nái að safna upp einhverjum kolvetnum.
Kiddi Geir

Staðreyndir

28. mars 2007 klukkan 11:13
Fann einhver svona leik á netinu á einhverri myspace síðu. Maður stafar sem sagt nafnið sitt og þá kemur eitthvað satt um þig út!

A : best kisser ever.
B : You like people.
C : You are really silly.
D : You like to drink.
E : Great in bed.
F : You are dead sexy.
G : You never let people tell you what to do.
H : You are Quirky
I : Great in bed.
J : People Adore you
K : You're wild and crazy.
L : Unbelievably great in bed.
M: You like to drink.
N: one in a million.
O: awesome kisser.
P : You are popular with all types of people.
Q : You are a hypocrite.
R : Fuckin crazy.
S : Easy to fall in love with.
T : You're loyal to those you love.
U : You really like to chill.
V : You are not judgmental.
W : You are very broad minded.
X : You never let people tell you what to do.
Y : best boy/girl friend any one can ask for.
Z : Always ready

K: You're wild and crazy.
I: Great in bed.
D: You like to drink.
D: You like to drink.
I: Great in bed.

.... true, true
Kiddi Geir

Að reka land

26. mars 2007 klukkan 09:59
um daginn hitti ég konu sem spurði mig til vegar því hún var að leita að kosningaskrifstofu Vinstri Grænna. Í fyrsta lagi var hún andfúl og í öðru lagi þá vissi hún ekki hvar sín eigin kosningaskrifstofa var. Með því að kjósa Vinstri Græna væri ég að kjósa helvíti yfir mig því lið sem getur ekki burstað tennurnar og ratað heim myndi ekki getað stjórnað heilu landi. X-D.
Kiddi Geir

Barnaland

22. mars 2007 klukkan 08:41
það er ekkert eins barnalegt og smáborgarahátturinn, baktalið, kjaftasögurnar og vælið á barnalandi.is þar sem fullorðnar kellingar rífast í hver annari eins og smákrakkar í sandkassaleik.
Kiddi Geir

Fallegt Ævintýri

20. mars 2007 klukkan 23:39
Einu sinni spurði strákur stelpu "viltu giftast mér?"
Stelpan sagði: "nei!"
Og strákurinn lifði hamingjusömu lífi eftir það, fór í veiði, horfði á fótbolta, spilaði mikið golf,
drakk bjór og prumpaði hvenær sem honum sýndist.

ENDIR
Kiddi Geir

ný uppfinning

19. mars 2007 klukkan 12:07
þar sem sumarið er að koma hef ég fundið upp á nýrri uppfinningu en það er ofnhanska grifflur.
Kiddi Geir

bað

19. mars 2007 klukkan 12:04
ég sé ekki hvað er kósy við að setja svona baðbombu í baðið. ég setti smá dínamít, ilmefni og salt í baðið og það stórsér á baðkarinu eftir þetta og svo heyri ég frekar lítið á hægra eyra.
Kiddi Geir

nýjasta tækni & vísindi

15. mars 2007 klukkan 09:13
vísindamenn við Harvard Háskóla hafa komist að þeirri niðurstöðu að efnið vatn, sem þeir segi að heiti H2O í svokölluðu lotu-kerfi, sé mjög gott við þorsta og hverskyns þurki.
Kiddi Geir

tæknin

14. mars 2007 klukkan 12:24
núna er komið út nýtt stýrikerfi frá Windows sem ber hið magnaða nafn Windows Vista og í því eru margar frábærar nýjungar eins og til dæmis sú að nú er hægt að vista og geyma gögn á tölvunni.

Það þýðir að ef þú til dæmis skrifar skjal með einhverjum texta af lyklaborði er hægt að ýta á takkann "save" og þar með vista gögnin og opna í framtíðinni aftur.
Kiddi Geir

helgi

13. mars 2007 klukkan 18:05
stundum væri ég til í að vera heimavinnandi húsmóðir ... þá væri eins og það væri alltaf helgi og eins og maður væri í fríi stanslaust !!!
Kiddi Geir

óþekkt

13. mars 2007 klukkan 08:31
ég er nú yfirleitt mjög stilltur og þægur en í dag hef ég ákveðið að vera óþekkur og ég ætla að vera með prakkarastrik ...

____________________________________________________________________

þetta er mitt mesta prakkarstrik hingað til.
Kiddi Geir

hvati

09. mars 2007 klukkan 20:15
ef ég fengi alltaf bjór fyrir húsverkin eins og í kvöld þá væri mun fínna heima hjá mér en það er í dag. þetta er eins og í eðlisfræði, bjór virkar eins og eitthvað afl sem keyrir mann áfram.
Kiddi Geir

tímanlega

07. mars 2007 klukkan 22:39
í kvöld tók ég niður jólaseríuna sem var úti í garði, enda aðventunni ný lokið, og ekki seinna vænna en að ganga frá þessu drasli inn í kompu fyrir næstu jól.
Kiddi Geir

Neitt

06. mars 2007 klukkan 10:32
stundum þá nenni ég bara ekki að skrifa ________.
Kiddi Geir

Létt

06. mars 2007 klukkan 10:18
Létt-Bylgjan er eins og Létt-Jógúrt ... frekar væmið og þunnt.
Kiddi Geir

töff

02. mars 2007 klukkan 10:31
af öllum þeim gjöfum sem ég hef fengið í gegnum árin hefur mér þótt einna vænst um loðstýrið sem ég fékk í jólagjöf einu sinni og var með á stýrinu í bílnum mínum. það var líka svo fáránlega svalt að vera með það ... ég meina maður þurfti ekki einu sinni að vera með hanska þegar maður var að keyra og stýrið var þvílíkt mjúkt eins og kanína. those wore the days!
Kiddi Geir

Auglýsing

Kiddi á Krít

Leit

Innskráningar kubbur