mátun

26. júní 2007 klukkan 09:31
það er ekki sniðugt að fara í mátunarklefann og öskra svo hátt eftir smá stund "það er enginn klósettpappír hérna!" ... maður fær skringilegt augnarráð þegar maður kemur út.
Kiddi Geir

sund

25. júní 2007 klukkan 21:25
dóttir mín hátt og snjallt í illauginni í sundi áðan: ég er búinn að pissa á mig !
Kiddi Geir

í útláni

22. júní 2007 klukkan 09:17
eftir 27 ár var ég að átta mig á því að maður segir útilegumaður en ekki útileigumaður. ég er einmitt að fara í úti-legu yfir helgina en ekki í útlán eins og það sé hægt að panta mig yfir helgi!
Kiddi Geir

þægindi

21. júní 2007 klukkan 13:42
sá einn gaur í rafmagnshjólastól sem var með síman sinn bara tengdan í hleðslutæki við stólinn. þetta kallar maður lúxus!
Kiddi Geir

Gaza

19. júní 2007 klukkan 09:02
sumir eru rekandi við í sí og æ ólíkt mér. það að vera innan við 6 metra radíus við þetta lið kalla ég að vera á Gaza-svæðinu!
Kiddi Geir

unglingar

18. júní 2007 klukkan 11:28
unglingar í dag eru beittir ... hafa kannski alltaf verið það en hér er gott dæmi. einhver stelpa sem er víst oft í ljósum og alltaf vel tönuð heitir Jóna. krakkarnir voru ekki lengi að finna út hvað ætti að kalla hana ... nú er hún kölluðu Jónatan.
Kiddi Geir

Ora vs. Þykkvabær

16. júní 2007 klukkan 22:15
hvort ætli sé leiðinlegra að vera maðurinn sem týnir gular baunir af kornmaís og setur í niðursuðudós hjá Ora eða maðurinn sem skrælir allar forsoðnu kartöflurnar hjá Þykkvabæ?
Bæði tvö alveg ömurleg störf.
Kiddi Geir

Mannanafnanefnd: 6 mánaða yfirlit

16. júní 2007 klukkan 22:13
nafnið Guðmundur Birgisson hefur ekki verið mjög vinsælt fyrstu 6. mánuði ársins. Nafnið var í 85. sæti á topp 100 en það hefur ekki verið svona neðarlega frá upphafi mannanefndar, eða síðan 1948. Formaður nefndarinnar telur að þetta sé Guðmundi í Byrginu að kenna.
Kiddi Geir

tæknileg mistök

13. júní 2007 klukkan 15:16
sá auglýst "Útsala í Golfbúðinni - 40% afsláttur" og dreif mig á staðinn en þá var ekkert þarna tengt golfi, heldur bara flísar, teppi og eitthvað þannig drasl. Smá tæknileg mistök!
Kiddi Geir

í blindni

11. júní 2007 klukkan 18:12
sumir halda að bara blindir menn setjist alltaf á klósettið, jafnvel þear þeir þurfa bara að pissa, en það er ekki satt, ég sest alltaf þegar ég fer á klóið og slappa af, spara orku og nota tímann til að hugsa. ég er reyndar löglega afsakaður því ég nota gleraugu
Kiddi Geir

Garðyrkjumeistari

08. júní 2007 klukkan 08:23
ég er eins og kelling þessa dagana. einu áhugamálin mín snúa að garðyrkju, eldamennsku og innanhúshönnun. ég hef skipað mig garðyrkjumeistara í garðinum heima og konan mín er minn starfsmaður. hún hefur verið skipuð framkvæmdastjóri sumarblómasviðs og svo sér hún um að slá og hreinsa beð og vökva. ég skipa bara fyrir, enda er ég garðyrkjustjóri.
Kiddi Geir

kjallarinn, undir neðra plani

06. júní 2007 klukkan 00:41
ég hef aldrei skilið fólk sem hefur enga sjálfsvirðingu og leggst svo lágt, svo lágt að það heldur með man.utd. það er mér hulin ráðgáta!
Kiddi Geir

framboð - eftirspurn í stærðfræði

02. júní 2007 klukkan 21:37
iðnaðarmenn eru skrýtið fyrirbæri því það er heill iðnaður í kringum það að fá iðnaðarmenn í dag til starfa, sem minnir mig á svipað dæmi í stærðfræði 303 þegar fjallað var um afegaleiddar jöfnur, en þá þarf eitthavð eitt til að geta leyst eitthvað annað.

hver segir svo að stærðfræði sé ekki gagnleg.
Kiddi Geir

Auglýsing

Kiddi á Krít

Leit

Innskráningar kubbur