spakmæli

29. ágúst 2007 klukkan 15:46
á morgun segir sá vitri!
Kiddi Geir

Að kaupa svínið í sekknum

28. ágúst 2007 klukkan 17:58
Keypti mér lítið svín um daginn. grísinn minn er ferlegur. Hann er farinn að naga allt heima, öll húsgögn og aðra innanstoksmuni, þannig að það stórsér á öllu! ég er hræddur um að þetta sé naggrís sem ég hef keypt.
Kiddi Geir

Baldur Bett Bilaður

28. ágúst 2007 klukkan 17:56
Baldur Bett skipti um lið fyrir tímabilið og hvað gerist ? jú hann fer úr axlarlið eftir að hafa skorað stórglæsilegt mark ... Svona er þetta að hætta í FH, eintómt vesen.

Vona að þú jafnir þig fljótt kallinn!
Kiddi Geir

tilkynning

22. ágúst 2007 klukkan 15:36
í kjölfar stanslausra hringinga þá hef ég ákveðið að koma með tilkynningu því ég er þreyttur á orðrómi þar sem ég er orðaður við lið frá Frakklandi, Ítalíu og Spán. Ég hef aldrei rætt við félög í þessum löndum því í huga mínum er eini möguleikinn Liverpool.
Kiddi Geir

fuglafræði

22. ágúst 2007 klukkan 13:56
Lundar eru hressir og yfirleitt léttir í lundi ... sem sagt léttir í sjálfum sér !
Kiddi Geir

Lærdómur

20. ágúst 2007 klukkan 10:47
Magnús Friðbertsson hélt utan 19 ára til Bandaríkjanna og lærði eðlis- og lífeindafræði í Harvard áður en hann fékk lærlingsstöðu hjá NASA og nam þar rúmfræði. Eftir að hafa lært í 16 ár og vera orðinn 35 ára þá flutti hann loksins aftur til Íslands þar sem hann fékk strax vinnu í Betra Baki sem rúmsérfræðingur. Hann er landsins besti sérfræðingur um TruTemper dýnuna sem er úr geim-froðu sem mótar sig eftir þeim sem liggur á henni. Talið er að hann hafi fundið hana upp á námsárum sínum hjá NASA en það hefur hann aldrei viðurkennt.
Kiddi Geir

íslenska

15. ágúst 2007 klukkan 12:48
hef aldrei skilið tvennt í íslensku almennilega en það eru tvö orðatiltæki ...

gott ef ekki ? og ekki óvitlaust ?

dæmi 1:
gott ef ekki ... sem sagt slæmt ef er ?

dæmi 2:
Maggi: ég ætla að skipta golfbuxunum mínum sem ég fékk gefins því þær eru of litlar og fá mér golftreyju í staðinn því mig vantar svoleiðis og eiga afgang í eitthvað annað.
Kiddi: það væri ekki óvitlaust.

ef hann gerir þetta er hann þá vitlaus ???
Kiddi Geir

ókunnugt

13. ágúst 2007 klukkan 15:43
mér er illa við að kyssa ókunnugt fólk því ég vill ekki frá frunsu. ég hef aldrei fengið frunsu sem þýðir að ef ég hef þær ekki þá eru einhverjir aðrir með frunsurnar. þannig að þið sem viljið kyssa mig ... látið mig í friði!
Kiddi Geir

vængur

12. ágúst 2007 klukkan 10:39
var í útlöndum. komst að því að alltaf þegar ég hef farið í flugvél, í síðustu 5 utanlandsferðum, þá hef ég setið við vænginn. þýðir það að ég sé þá vængefinn?
Kiddi Geir

Auglýsing

Kiddi á Krít

Leit

Innskráningar kubbur