31. desember 2007 klukkan 11:44
ég sá um daginn mann sem fór undir teppi og prumpaði, mér fannst það frekar skrýtið, en þá áttaði ég mig á því að þetta hlyti að vera einhver úr röðum umfhverfissinnaðra vinstri grænna sem var þarna að vernda ósonlagið með því að endurnýta sitt eigið gas.
29. desember 2007 klukkan 16:14
ég ákvað síðustu áramót að hætta að naga neglurnar enda orðinn 27 ára. því hætti ég því í dag enda aldrei of seint að hætta og það er jú ennþá 2007 þannig að ég hef alveg 2 daga í viðbót.
29. desember 2007 klukkan 16:12
ég hef ákveðið að vera með smá nýjung í áramótamatnum í ár. það sem þarf til eru flugeldar og sprengjur og eitt stykki svín. maður límir flugeldana við svínið og kveikir í og síðan rignir niður beikoni eftir um það bil 10 sekúndur og þá er um að gera vera í viðbragðsstöðu og grípa góssið.
29. desember 2007 klukkan 16:09
ég fór í bíó um daginn og bað um einn miða fyrir börn. síðan þegar ég ætlaði inn var mér neitaður aðgangur en eftir að ég útskýrði fyrir dyraverðinum að ég væri mannsbarn hleypti mér auðvitað inn því þetta var allt misskilningur af hans hálfu.
23. desember 2007 klukkan 21:06
ég hef oft sagt það en ísland á einhverja lélegustu matarmenningu í heimi. meðan aðrar þjóðir brugga vín, bjór, dýrindis osta og þessháttar höfum við súrsaða hrútspunga og viðbjóð.
það rann enn betur upp fyrir mér þegar ég áttaði mig á því afhverju menn éta kæsta skötu á þorláksmessu en það er vegna þess að í gamla daga var til svo lélegt kjöt á jólunum að menn átu fisk angandi af hlandi daginn fyrir jól og þá er allur matur hátíðarmatur eftir það, þó það sé feitt soðið lambakjöt af sjálfdauðri rollu.
22. desember 2007 klukkan 20:04
bónus
að fara í bónus í dag er ekki ósvipað og að fara í enskupróf í framhaldsskóla, maður þarf að hafa orðabók meðferðis.
brenna
vinur minn spurði mig um daginn hvort hann mætti brenna disk sem ég á en ég sagði honum bara að kaupa sína eigin diska til að kveikja í.
bók
það er oft sagt að það búi bók í hverjum manni ... það býr engin helvítis bók í mér því ég er engin bókahilla, ég hef aldrei étið bók og svo eru bækur ekki lifandi.
20. desember 2007 klukkan 08:24
ég er búinn að bjóða konunni með mér út að borða á morgun á domo. það sem hún veit hinsvegar ekki er að ég kalla dominos alltaf domo þannig ég á eftir að koma henni skemmtilega á óvart. Aldrei að vita nema maður taki grand-pakkann á þetta og panti kannski pítsu með 3 áleggstegundum!
19. desember 2007 klukkan 10:07
nú hefur sprottið fram nýr jólasveinn að undanförnu en það er hann spilafíkill. hann gefur víst bara happaþrennur og launamiða í skóinn. ef hann gefur dót þá gefur hann pókersett, teninga og þessháttar spiladót. nú hafa margir rónar kæst og vona að alkasveinn komi líka fram en það verður tíminn að leiða í ljós.
12. desember 2007 klukkan 18:19
ég hef ekkert á móti dvergum og ekket á móti hommum, en ef við stöldrum aðeins við þá hugsun um dverg sem væri líka hommi, þá fær það mann til að hugsa hvort hann myndi þá ekki koma út úr skenknum ?
10. desember 2007 klukkan 17:37
afhverju er það alltaf þannig að sigurvegarinn í ungfrú alheimur kemur alltaf frá jörðinni ?
09. desember 2007 klukkan 15:57
þegar hirðingjarnir þrír komu til Betlehem með gjafir handa jesú, hvort voru þeir þá að koma með jólagjafir eða afmælisgjafir? ég held að þeir hafi ekki vitað það sjálfir því þeir voru ekkert svo vitrir.
04. desember 2007 klukkan 21:14
á meðan sumir safna fáránlegum og ópraktískum hlutum ætla ég að prufa í fyrsta sinn í sögu internetsins að safna athugasemdum á bloggsíðu en ég ætla að gera þetta á meðan ég fer út til Denmark.
ég stefni á að safna 10 stykkjum.
04. desember 2007 klukkan 08:12
í dag er bara einn dagur í að danski kúrinn hefjist, sushi, kebab og jólabjór, í 4 daga prógrammi. þetta kallar maður almennilegan kúr.