úti á landi #6

31. janúar 2008 klukkan 14:41
það er hundfúlt að búa úti á landi, fyrir utan reyndar á seyðisfirði, þar hlýtur að vera mjög gaman að búa því þar er alltaf eitthvað á seyði.
Kiddi Geir

tekinn

30. janúar 2008 klukkan 22:56
sá sem les þetta er asni.
Kiddi Geir

hjúskparstaða

28. janúar 2008 klukkan 18:23
það er svo fyndið þegar fólk svarar spurningunni hjúskaparstaða og segir: ég er bara laus og liðug. væri ekki bara nær að segja: ég er bara ljót og enginn vill vera með mér og ég er liðug.
Kiddi Geir

satanískt

28. janúar 2008 klukkan 18:10
Á fyrsta degi skapaði Guð heiminn, himinn og haf og svo skapaði hann eitthvað annað, og annað hinn daginn. á þriðja degi kom svo Satan og skapaði grænmeti.
Kiddi Geir

silencer

28. janúar 2008 klukkan 09:05
afhverju finnst mér byssur betri en konur ... jú, af því að það er hægt að setja hljóðdeyfi á byssur.
Kiddi Geir

bóndadagurinn

25. janúar 2008 klukkan 08:56
ég vill óska öllum bóndum til hamingju með daginn, þó sérstaklega öllum bændum í Húnavatnssýslu austur og vestur. ég átti að skila kærri kveðju til þeirra bænda sem eru með beljur frá Mjólkursamlaginu og þeir sem eru með rollur fá innilegar hamingjuóskir frá Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki og einnig Víkurprjóni.
Kiddi Geir

flug

21. janúar 2008 klukkan 23:53
ætli það sé skárra að hrapa til dauða ef mann hefur alltaf dreymt um að vera fugl ?
Kiddi Geir

Grillpartý

21. janúar 2008 klukkan 23:52
á morgun á að vera bongó blíða og því hef ég ákveðið að halda grillveislu í garðinum hjá mér kl 17:00 á morgun. það er alveg spáð 5 stiga hita en reyndar 30 vindstigum líka. koma bara með akkeri með sér eða fangakúlu og keðju.
Kiddi Geir

markaðsetning

17. janúar 2008 klukkan 14:25
íslenskur kvennakörfubolti myndi fá mun fleiri áhorfendur á leiki ef öll liðin tækju sig saman og myndu panta sérsniðna búninga úr Victoria Secret-línunni frá NIKE.
Kiddi Geir

á bekknum

17. janúar 2008 klukkan 10:47
ég er búinn að vera keppa svo mikið undanfarið að ég er bara kominn með mjólkursýrur í rassvöðvana.
Kiddi Geir

prófessor

15. janúar 2008 klukkan 09:42
stundum mætti halda að ég væri snargeðveikur prófessor, nema hvað ég er ekki veikur á geði né heldur með doktorsgráðu.
Kiddi Geir

sumarfrí

10. janúar 2008 klukkan 08:39
það eru hreint ótrúleg tilboð í gangi núna hjá ferðaskrifstofunum. ferðir til Hebrons í Ísrael og Kabúl í Afghanistan eru á ótrúlega lágu verði en toppa ekki besta tilboðið, "Náttúruparadísin Kenýa" sem er nánast ókeypis ferð. Svo kostar ekkert að fá hótel og þessháttar þannig að það er spurning um að skella sér bara á þetta fyrir sumarið.
Kiddi Geir

viðskiptahugmynd!

10. janúar 2008 klukkan 08:36
ég fékk snilldar hugmynd, en hún er að stofna tvo veitingastaði, annars vegar South-American Style sem býður upp á mexikóska matargerð og hins vegar Asian-Style sem býður upp á framandi asíska matargerð ekki ósvipað og Nings.
Kiddi Geir

sparnaður

09. janúar 2008 klukkan 15:02
það er hægt að spara á ýmsan hátt og sleppa því að kaupa ýmsa hluti ... en það borgar sig ekki að spara með því að kaupa ekki klósettpappír.
Kiddi Geir

úti á landi #5

08. janúar 2008 klukkan 08:47
það er eflaust fínt að búa úti á landi ef maður vill ekki eiga samskipti við fólk og hafa ekki stöð2, en það er ekki fínt að búa úti á landi ef maður þarf kannski að skreppa í kringluna.
Kiddi Geir

leikjatölvur

02. janúar 2008 klukkan 15:55
gamalt fólk er ekkert sérstaklega klárt á tölvur, það er allavegana ekki nýjar tölvur með mús og lyklaborði, en því finnst gaman að leika sér. þess vegna kann það svona rosalega vel á gamlar tölvur úr fortíðinni eins og nintendo og spilakassa happdrættis háskóla íslands sem það hefur leikið sér að á uppvaxtarárum sínum.
Kiddi Geir

fréttir

02. janúar 2008 klukkan 10:23
ég gaf mikið af gömlum fötum af mér fyrir jólin í fatahjálp rauða krossins. ég passaði mig bara á að merkja þau vel KIDDI framan á og aftan og hafa þau í áberandi litum því núna sit ég spenntur fyrir framan fréttatímann og fylgist vel með fréttum frá 3. heiminum í von um að sjá kannski gamla flík frá mér skjótandi úr hríðskotabyssu.
Kiddi Geir

átröskun

02. janúar 2008 klukkan 10:19
í gær átti ég mjög erfitt. ég þjáðist af átröskun í gær en ég var að borða þegar einhver hringdi úr einhverju símasöluveri og reyndi að selja mér eitthvað í miðjum matartímanum.
Kiddi Geir

Auglýsing

Kiddi á Krít

Leit

Innskráningar kubbur