í dag náði ég þeim merka áfanga að hætta að naga neglurnar en það tók mig bara 28 ár að ná þeim áfanga. ég verð að heiman í kvöld en þeir sem vilja samgleðjast eru vinsamlegast beðnir um að senda gjafir í formi penings í lokuðu umslagi í pósti.
sá eitthvað tilboð um daginn; einhver svaka ferð með mat, drykkjum og fleira á 7.990 kr. með mökum? Já frábært matur og kynlíf saman í pakka, frábært tilboð.
ég var að fá bréf heim inn um lúgunua frá ríkisféhirði þar sem er verið að rukka mig um einhver gjöld. mér finnst það nú frekar lélegt þar sem ég er ekki með neinn fjárbúskap og á ekki einu sinni kindur!!!